We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

Vikinga Sei​ð​ur

by Krauka

/
1.
Rune 00:25
2.
Krummi 02:15
Krummi svaf i klettagjá Kaldri vetrar nottu á :Verdur margt ad meini: Fyrr en dagur fagur rann Fredid nefid dregur hann :Undan stórum steini: À ser krummi yfdi stél Einnig bryndi goggin vel :Flaug úr fjallagjótu: Litur yfir byggd og bú Á bæjum fyrr en vakna hjú :Veifar vængjum skjótum: Sáladur á sídu lá Saudur feitur gardi hjá :Fyrrum frár á velli: Krunk krunk nafnar komid hér Krunk krunk lui oss bodin er :Krás á køldum svelli: Text & music: Trad. (Language: Icelandic) Leadvocal & stones – Gaua, vocal & drum – Aksel, vocal & willowflute – Jens, production & mix – Kasper. Ravnen som sidder I kløften I den kolde vinternat Den er ynkelig Inden solen dagen starter Trækker den sit frosne næb Væk fra stenen Et dødt får ligger på siden ved gærdet før var han frisk og ung ravnen kalder på de andre ravne for her er noget godt at spise på den kolde sne/is
3.
02:14
4.
Valravnen 03:03
Valravnen Ravnen flyver om aftenen Om dagen den ikke må Den skal have den onde lykke Den gode den ikke få Men ravnen flyver om aftenen, om aftenen Text: Trad. – music: trad. & Krauka (Language: Danish) Leadvocal & bowed lyre – Aksel, Jewharp, vocal & drum – Gaua, lyre & vocal – Jens, production & mix – Kasper.
5.
Husdyrene 02:16
6.
Selje 01:58
7.
Egils digt 02:58
Et digt som Egil skrev da han var 6 år (Egils saga) Min mor sagde At der skulle købes til mig Et skib med smukke årer Jeg skulle tage af sted med vikinger Stå i stavnen Styre den dyre knarr Ind midt i havnen Og nedhugge en mand og en anden
8.
Vikinger drog mod ukendte kyster med styrke, evner og eventyrlyster. Shetland og Hjaltland var let at favne da Island blev nået af Flokis ravne. Øen blev bosat rundt omkring med gårde og bygder, fristat og ting. Orkny, Færø. Island og Grønland, nye lande, hvor ingen folk boede. Længst mod vest, hvor solen går ned, fandt vikinger Vinland det Gode. Erik den Røde begik et mord og dømtes fredløs på islandsk jord. Mod nord fandt han land og bad folk rejse med og tage landnam det nyfundne sted. Grønlandske bygder blev grundlagt med flid og Erik blev høvding på Brattahlid. Orkny, Færø……. Eriks søn Leif, en vidtberejst mand Drog som søfarer fra land til land. Han mødte Bjarne, der drevet af blæst havde set en kyst langt ude mod vest. Leif mente nok, at det var værd, så han tog af sted på en opdagerfærd. Orkny, Færø…………….. Hellulands klipper og frosne bræer Markland var fladt og bevokset med træer. Fundestranden med kridhvidt sand længere syd på gik Leif i land Stedet var rigt, alt til vikingers gavn Vinland det Gode blev landets navn. Orkny, Færø……………….. Text & music: Georg Zeuthen & Krauka (Language: Danish) Leadvocal & drum – Gaua, bowed lyre & vocal – Aksel, flute & vocal – Jens, production & mix – Kasper.
9.
Månen 02:38
10.
Moder min 02:19
Móðir mín í kví, kví kvíddu ekki því, því, ég skal ljá þér duluna mína, duluna mína að dansa í.
11.
Sigurdkvadet 03:34
12.
Lokes dans 01:27
13.
Det glæder menneskene at se de grønne bakker I den smukke dal Det gode vejr holder I den smukke sal
14.
Forårssang 01:52
15.
Brudemarch 02:46
16.
17.
18.
Fæ dør 02:29
19.
Fanfare 00:20
20.
Sigurd Remix 03:53

about

ALL LYRICS IN ALPHABETICAL ORDER

Álfasöngur (Óðinn)

Fagrann heyrði ég álfasöng
sem lét svo ljúft í eyrum
er barst mér úr klöppum
í hömrunum hér að ofan

hann smaug svo fínt í sálina
að hjartað fylltist friði
klökkur ég sast á þúfuna
med andlit fullt af tárum

þá birtist mér þar álfakór
í kirtla skrúði fríðum
og sungu söngva sannleikans
um tryggð og ærugildi

en ég sem kem úr mannheimum
máttlaus mennskur maður
aula gullið glepur þar
og mælt er allt í aurum

en söngur sá er heyrði þar
töfrum tælandi tónum
að öllu lifandi hann bar
og breytti mínum sjónum.




Angantýr (Heimkoma)

Brandinn hann skal sækja
spjót og skjöld taka fram
inn í slaginn æða
fram nú fara með vígamóð

rekið skal nú saxið inn
drepa skal hann Angantýr
í valnum skal hann liggja
og þar honum út blæða

höggva mann og annann
berjast áfram, sækja fram
liðið leggja í valinn
blóðið drýpur brandi af

læðist burt úr valnum
heigull huglaus kappinn

í valnum flokkur fríður
vopna gnýgur, falla menn
hvergi finnst í valnum
kappinn mikli Angantýr

reka skal nú saxið inn.




Berserkjatal (Tíminn Tifar)

Nú skal af berserkjum segja
með kóngum voru til forna
á berserkja sveppum þeir keyra
úlfhuga mönnum við sporna

Örn Öskuður, án Bogasegir
Úlfur, Ægir og Anis
Áran, Amon og Erpir
Há,r Haki, Hléseyjarskalli

Hreggviður, Hamar, Hrafn,
Hjasi, Hræreykir, Hyldir,
Gellir, Grímnir, Gönguhrólfur,
Gautur, Gáran, Glammaður

Sörli, Stefnir, Styr sterki,
Siggeir, Sverður og Surtur
Lífólfur, Loðmundur, Logi
Tjössi, Þórður, Þórtussi

Bolbjór, Boli, Beinserkir
Köttur, Krák, Knútskveisa,
í skjaldar rendurnar bíta
berjandi á bumbur berserkir

sæstormurinn öskrar og ýlfrar
veður máninn myrkum skýjum
blásvartann byrðinginn ber báran
berjandi bumbur berserkir.


Bláskel (Heimkoma)

Rífur í reyðan og seglið rifnar
borthætt er bláskel briminu í

Örlög les úr flugi máva
skellur sær á dranga háa
ber hann boða og kletta skorur
blásvartur er suðupottur

brothætt er bláskel briminu í

Feyðandi sjórinn fullur feigðar
fargast fley í brimi köldu
brotna í spón á sjávarströndu
í votri gröf þar seglin fögru

brothætt er bláskel briminu í


Brávallar bardagi (Loka Leikur)

Standa í stórræðum
stórkostlegt lið
hópast á helpalla
að heiðnum sið
vígamenn vopnast
við valhallar hlið
brosandi berserkir
bregðast við

krankur konungur
keyrir afstað
Óðni til heiðurs
hendast um hlað
Vaðið um velli
í valsins svað
bardögum barist
blóðbað

Brávallar bardagi
blásinn er á
veiginum valhöllin
verða má
öskrað til orustu
Óðinn á
Haraldur Hilditönn
hringur sá

danann drepa
með dáð og dug
hausar og hendur
hefjast á flug
blóðrúsi berjast í
bardagann Hringur
blæs á bug

frændur fengu
fagran frið
góðann gerðu
gumar grið
frækinn foringi
í valhöll flaug
Haraldur Hilditönn
hófu í haug.


Brúðarvals (Eftir Orustuna)

Hann geiri hosur sínar
grænar fyrir hana
rósrauðum blöðunum
dansa þau á
hún gefur glaðlega
gaurnum undir fótinn

blóðrauðum blöðunum
dansa þau á
hún er mín, hann er minn

þau lifa lífi saman
sammála og gaman
rósrauðu skýinu
dansa þau á
flissandi fíflast í
hjónasænginni
blóðrauðum blöðunum
dansa þau á
hún er mín, hann er minn

saman dansa, dansa út í lífið
saman dansa nú
saman dansa, dansa út í lífið
saman dansa nú
hún er mín, hann er minn.

Dala dans (Gjörningur)

Fögrum fjalla faðminum
undir háu fjöllunum
feykist fólk á fjölunum
dunar dans í dölunum

fögur eru Freyju föng
lifa ljúfu lögin löng
lífið er í kvæða söng
dunar dans í dölunum

sögur syngja í skálanum
skemmta sér í sálunum
súpa svo úr skálunum
dunar dans í dölunum

kemur kvöldið kátt í hól
konur kunna kalt er ból
kveða kallar kvæða róm
dunar dans í dölunum

kúra kellur kæta sig
kalla kossar kjassa þig
komdu kinn og kysstu mig
dunar dans í dölunum.


Dísudans (Óðinn)

Það sagt hafa mér ferðalangar
sem ferðast hafa um heiðarlönd
í vötnum búi votar verur er seiða huga manns
er fjöllin fella fanna feldinn
og auðar verða heiðarnar
þá litlir lækir taka spretinn og sprænur verða fljót
ísa leysir komið er vor
vagga þá dísir gárunum á
losnar vatnið, vetur er frá
vakna þá dísir vötnunum á

úr klakaviðjum vötnin vakna
glaður dropinn iðar ótt
sendir geisla sína, sólin glampar gleður grjót
dansa dísir dýrðar dansinn
daga lengir, björt er nótt
drýpur dögg og vaknar dagur, dynur dísa dans
þær hafa sofið vetur í gegn
komið er vorið það þykir fregn
loks dansa dísir vötnunum á
það þykir flestum fagurt að sjá

þá vondur vindur vetrar élið
næðir frost um væta lönd
fimbulkuldi klakabrynja, frýs þar dísa vals
um heiðar ísa vindar væla
drottnar snjór og frosta krap
kallar kulda konungur vetur, skellur hann á skjótt
frosin er foldin frystir frýs
vötn verða væta veröld af ís
á ísalandi freðið er frost
karlinn er kulinn frosinn er koss.


Dreptu (Tíminn Tifar)

Dreptu því hefndar skyldan, hefndar skyldan er þín
dreptu og æru haltu, jafna ber nú leik
dreptu fyrir fallna bræður, greiða dauðans gjald
dreptu svo enginn sjái að þú sitjir hjá

sá sem dregur sverð úr sári hefndar skyldu á
bóði bundin bræðraböndin, frændur falla frá
hefndin er í þínum höndum, heimur nú má sjá
gungu gangur eigi gengur, gumar eftirsjá

dreptu og leiknum ljúktu, greiða skal nú skuld
dreptu svo æran ekki fái á sig blett
dreptu því kaupin dauðinn jafna má
dreptu og útrás veittu, angri, reiði og sorg

sá sem…..

gor í blóði, sverð í sári, komin er hefndarstund
hrafninn flýgur og hrafninn sér
hrafninn stýrir örlögum hér


dreptu því það er skylda að keyra geirann inn
dreptu hefndar þorstinn rauðann dauðann fær
dreptu svo blóðið drjúpi djúpu sári úr
dreptu því sæt er hefndin og sigur sæl

sá sem…..

gor í blóði, sverð í sári, komin er hefndar stund.



Dvergatal (Eftir Orustuna)

Þar var Mótsognir
mæstur um orðinn
dverga allra
en Durinn annar

þeir mannlíkum
mörg um gerðu
dvergar úr jörðu
sem Durinn sagði

Nýji og Niði
Norðri og Suðri,
Austri og Vestri,
Alþjófur, Dvalinn,

Bívör, Bávör,
Bömbur, Nóri,
Án og Ánar,
Ái, Mjöðvitnir.
Veigur og Gandálfur,
Vindálfur, Þráinn,
Þekkur og Þorinn,
Þrár, Vitur og Litur,

Nár og Nýráður,
nú hefi ég dverga,
Reginn og Ráðsviður,
rétt um talda.

Fíli, Kíli,
Fundinn, Náli,
Hefti, Víli,
Hannar, Svfíur,

Frár, Hornbori,
Frægur og Lóni,
Aurvangur, Jari,
Eikinskjaldi.

mál er dverga
í Dvalins liði
ljóna kindum
til Lofars telja.

þeir er sóttu
frá salar steini,
Aurvanga sjö
til Jötunvalla.

þar var Draupnir
og Dólgþrasir,
Hár, Haugspori,
Hlévangur, Glói,
Skirvir, Virvir,
Skáfiður, Ái.

Álfur og Yngvi,
Eikinskjaldi,
Fjalar og Frosti,
Finnur og Ginnar;

það mun upp
meðan öld lifir,
langniðja tal
lofars hafað.

(Úr Eddu)


Egils digt (Víkinga Seiður)

Það mælti mín móðir
að mér skyldi kaupa
fley og fagrar árar
fara á brott með víkingum
standa uppi í stafni
halda svo til hafnar
og höggva mann og annan.

(Úr kvæði ‘Út vil ek’ eftir Egil Skallagrímsson)


Fimir fætur (Heimkoma)

Dansa nú báðir fætur
svo hratt sem augað sér
á snúningum hef ég mætur
svona skemmti ég mér

feykjast nú pilsafaldar
léttar á dansins fjölum
stúlkurnar ekki taldar
dunar dans í dölum

hraðar fer nú dansinn
verðum að vera með
hugur minn er fanginn
glatt er guma geð

ótt í gegnum nóttu
flýgur dansinn hér
faðmlaganna njóttu
saman hér með mér.



Fossbúinn (Bylur)

Gakktu með í grænan skógarlund
glöð og góð er ætíð unaðsstundin

fagurt er við fríðan skógarfossinn
frið og sælu gefur fyrsti kossinn

fuglinn frjáls við fossabrúnir syngur
þar út fagurt meyjarblómið springur

gylla sólargeislar fossins úða
gleður alla náttúrunnar skrúða.




Fram (Óðinn)

Deyja allir fram

söfnum öllum sveitum saman
fram fram
Ör á strengi drengir saman
fram fram
Skjótum spjótum kappar saman
fram fram

sækjum fram!!

úr slíðrum sveiflum sverðum saman
fram fram
söfnum skjaldborgum saman
fram fram
sárum særum alla saman
fram fram
Valhallar sendum varga saman
fram fram


Deyr fé (Víkinga Seiður)

Deyr fé
deyja frændur
deyr sjálfur hið sama
en orðstýr aldrei deyr
þeim er sér góðann getur.

(Úr Eddu kvæðum)


Gimli (Óðinn)

Dagar taldir, deyja allir
níu heima hallir
við heimsins endir
stað einn kennir
og við endi, sálir sendir

sal veit ég standa sólu fegri
gulli betri á Gimli
þar skulu dyggvar dróttir byggja
og of aldurdaga yndis njóta

er aftur jörð úr ægi birtist
Bifröst brosir breiðast
vakna vil ég værum blundi
værð á vinar gólfi

dúnmjúkt dreymir dauða drauma
drýpur dögg á dali
hár á himni hæstur herjar
hátt um sína sali

sal veit ég standa sólu fegri
gulli betri á Gimli
þar skulu dyggvar dróttir byggja
og of aldurdaga yndis njóta.



Gobbetí (Óðinn)

Hleypa skal nú hrossum
henda sér á skeið
feykjast munu fákarnir
flott er þessi heið

ríðum og ríðum
gandreið

herða sveinar hestanna
hröð er þessi reið
fljótt skal fara gandur
fyrstur þessa leið

ríðum og töltum
brokkum og stökkvum
hendum okkur á skeið.



Göngur (Heimkoma)

Labbandi leitandi lamba
löng er einbúans leið
Undir hömrunum háu
heldur á göngustaf

opnast í myrkrinu hellir,
eldur inni þar skín
skessan á sænginni situr
syngur komdu til mín

rökkrinu fer að fenna
freðin er jörð og él
gengur um holt og hæðir
hræðist gljúfur og gil

bröltandi bóndi í bylnum
berst áfram þó bæti í vind
freistandi opið er fjallið
að lifa er ekki synd

opnast í myrkrinu hellir
eldur inni þar skín
situr skessan og syngur
ástin komdu til mín

bóndinn hann gengur í fjallið
í tröllkonu faðminn hann féll
ástanna nýtur og skjóls
grjót fyrir munnan féll.



Hausa Hallur (Óðinn)

Hólmgöngu hann Hausa Hallur
dyrum dauða dansar í
frammi fyrir ríkum jarli
brynju búinn baulandi

búinn bæði exi og geira
skreittum skildi og sverðið beitt
gömlum klæddur görmum slitnum
gnísti augum jarlinn á

aldrei fræðu mína stúlku
detta dauður fyrr ek má
glottir út að eyrum jarlinn
upp úr slíðri sveriðið fram

enginn stöðvar kvenna kaupin
meydóms rétturinn er minn
upp svo reiðir jarlinn sverðið
keyra hyggst í Hausa Hall

en í einu stóru stökki
hentist Hallur jarlinn á
og í einu vösku lagi
hedur jarlsins hausi á

síðan ætíð Hausa Hallur
nefndur eftir slaginn þann
lifði löngu lukku lífi
brúðar buru bænum á.


Heimkoma (Heimkoma)

Víkinga tógtir
þar var mikinn farið
útrás mikil
auður góður
sætur sigur á vörum
eftir hríðir harðar
blóðugur er brandur
sárum mörgum særður

er leitar hugur heim
er leitar hugur heim

yfir lág og lögu
gegnum storma hafsins
yfir fjöllin háu
gegnum græna skóga
inn í dalinn djúpa
inn í bæinn hlýja
með fangið fullt af gulli
færi ég þér

er leitar hugur heim
er leitar hugur heim


Hjónaband (Bylur)

Ég úti gekk um aftaninn
í unaðsfögrum lundi

þar mætti ég ungri meyju
á munar blíðri stundu

hún hét mér trú og tryggðum
og tók mér blítt í hönd

við knýttum og hnýttum
þau kærleiks tryggðar bönd

þau böndin sem við bundum
ei brutu nokkur hönd

uns eliðið þitt lága
þig leysir tryggðar bönd.



Hrafnadans (Stiklur)

Hrafnadansinn dönsum við og jörðin er föst undir

enginn fugl hann flýgur hærra en hrafninn er hann syngur.



Hugann seiða (Gjörningur)

Hugann seiða svalli frá
sundin, heiði og skörðin;
vona-leið er valin þá
vestur Breiðafjörðinn.
Allt er borið burtu gróm
bæði af Skor og fjöllum,
því að vorið blóm við blóm
breiddi í sporum öllum.

Dægur-halli daggperlum
dreifir vallargróðann;
bjargarstalla beltast um
blessuð fjallamóðan

þrjóti grið á þessum stað,
þá er lið að skeiðum,
því að hlið er opið að
úthafsmiðum breiðum.

(Ljóð eftir Jón S. Bergmann)






Husdyrene / Dýravísur (Víkinga Seiður)

Hani, krummi, hundur, svín,
hestur, mús, tittlingur.
Galar, krunkar, geltir, hrín,
hneggjar, tístir, syngur.

(Íslenskt Þjóðlag)

Hvalreki (Loka Leikur)

Sækjum nú hnífana og slípusteinana
því hvalur er rekinn á fjöruna
sækjum nú karlana og stóru dallana
því hvalur er rekinn í fjöruna

grípum gullið frá hafinu
flikkið er í flæðamálinu
lofum alla búbótina
hröðum okkur við vinnuna

sækjum nú hnífana og slípusteinana
því hvalur er rekinn á fjöruna
komið með börurnar og stóru föturnar
því hvalur er rekinn á fjöruna

tryggja okkur allra bestu bitana
brytja og búta niður alla skepnuna
súra og salta niður fæðuna
birgðarnar leggja á hestana

sækjum nú hnífana og slípusteinana
því hvalur er rekinn á fjöruna
sækjum nú karlana og stóru dallana
því hvalur er rekinn á fjöruna

söfnum saman öllu kjöti
koma því fyrir í búrinu
olíu bræðum úr spikinu
gott er að eiga mat að vetri

sækjum nú hnífana og slípusteinana
því hvalur er rekinn á fjöruna
sækjum nú karlana og stóru dallana
því hvalur er rekinn á fjöruna

restarnar eru handa hundunum
mikill matur er á hræjunum
fagra hluti gera úr beinunum
gorinu dreift á túnunum

Restarnar eru handa hundunum
mikill matur er á hræjunum
fagra hluti gera úr beinunum
gott er að eiga mat á veturnar.




Hörð Hríð (Páskadísaeiginmenn)

Söfnum nú liðum
köllum á hópa
segir vor siður
helpallar hrópa

kisturnar opnum
veljum úr vopnum
skjöldum og sverðum
spjótum og öxum

orrustu viljum
berjumst og vinnum
höggvum og leggjum
í valinn við göngum

hlakkar nú í berserkjum öllum
örvar standa fastar í skjöldum
bræður baki skjaldar múrnum
örvahríð er nú

sækja nú fram á
hundruð hesta
í reiðtýgjum gellur
og hófunum skellur
fram hestar geysa
hausarnir fjúka
sverðunum sveifla
skyldir þar klofna

frísa og hneggja
hestarnir skeiða
mót sínum dauða
í blóðinu rauða

hlakkar nú í berserkjum öllum
örvar standa fastar í skjöldum
bræður baki skjaldar múrnum
orrusta er nú

verjast í valnum
Vignir og Valur
skakast í slagnum
falur og feigur

ögrar og ógnar
blóðið í taumum
Rúnar og Ragnar
röskir í raunum

Berserkir berjast á banaspjótum
vinir verjast vaskir í valnum
svartir hrafnar svífa yfir dalnum
vopnin þagna nú.




Klaus Haj / Kláus Hákarl (Stiklur)

Klaus Hákarl margan myrti
um meinin þeirra lítirð hirti
saxið keyrði í þá inn
þeir sem sáu hann þetta gera
þótti gamli karlinn vera
furðu lítið frændrækinn.



Kráku Kvæði (Gjörningur)

Ríðandi, keyrandi, siglandi, fljúgandi,
krákan kemur í króka og kima,
syngjandi, spilandi, leikandi, dansandi
kráka á kostugum kjöftunum krúnkar.
argandi, gargandi, galandi, gólandi,
krákan þá kviðlingum kastar á þingið,
korrandi, krúnkandi, kurrandi, kvakandi,
krákan kveður alla í kútinn.
makandi, másandi, mælandi, masandi,
krákan kallar kindurnar saman.
viljandi, veitandi, vakandi, vísandi
krákan í véunum veltir upp vísum.


Krummi svaf í klettagjá (Víkinga Seyður)

Krummi svaf í klettagjá
kaldri vetrarnóttu á,
verður margt að meini.
Fyrr en dagur fagur rann
freðið nefið dregur hann
undan stórum steini.

Á sér krummi ýfir stél,
einnig brýndi gogginn vel,
flaug úr fjallagjótum.
Lýtur yfir byggð og bú,
á bænum fyrren vakna hjú;
Veifar vængjum skjótum

Sálaður á síðu lá
sauður feitur garði hjá,
fyrrum frár á velli.
,,Krunk krunk nafnar, komið hér,
krunk krunk því oss búin er
krás á köldu svelli.’’


(Úr ljóði eftir Jón Thoroddsen)




Ljósið Kemur (Gjörningur)

Þá vetrarsólstöð staldrar stund
og enn ein lífskvöl endar fund
veröld vaknar vetri frá
ljósið lýsa lengra má
sálin syngur sumri í mót
myrkrið missir smátt sinn mátt
leiðumst létt í ljóssins átt.



Loka Leikur (Loka Leikur)

‘Mistilteinn’

Sól og máni elska Baldur
blóm og plöntur elska hann
menn og dýr elska Baldur
heimar allir elska hann

‘Mistilteinn’

Loki lætur Höð nú leika
allt má víkja Goði frá
beinir bogar beint að Baldri
stendur ör í hjartastað.

‘Mistilteinn’



Loki (Bylur)

Loki, Loki Laufeyjarson
hvað var hann að bralla
sólin hafði fengið einn dag
og máni mánudaginn,
Týr hafði fórnað einni hönd
hann fékk þriðjudaginn.
Óðinn var miðja alls sem er
hann fékk miðvikudaginn.
Þór var þrek og þor og afl
hann fékk fimmtudaginn,
Freyr var góður og frjósemi
hann fékk föstudaginn.
Að kvöldi var drukkið vín og öl
farið seint í háttinn,
Loki hann læddist rúnunum að
og risti á rúnina lögur.
Hann langaði ósköp í að fá
dag sem minnti á hann sjálfan,
læddist í burtu og lagðist til
hvílu undir feldi.
Um morgun kom sól og skein
á krús með frosnum myði,
bráðnaði dropi og draup þar af
og lenti í Loka kjafti.
Hver hefur migið í minn munn
stóð hann reiður og æpti,
komið með vatn og laugið minn munn
þar varð til laugardagur.


Mannsöngur (Heimkoma)

Mín að telja afrek öll
ekki er nokkur vegur
ég hef ýstru ég hef böll
ég er æðislegur

þegar sólin sígur dags
sveiðar bólin myrkur
undir kjólinn leitar lags
lífsins drjólinn styrkur

yngissveinn hann fer á fjöll
finnur sprund í leynum
stúlka ein er elskar böll
eignast brund af sveinum

öllum meyjum upp í loft
ástin snýr í skyndi
fíkjublöðin fjúka oft
í freistinganna vindi

þú ert aldrei stundvís snót
snuðra þarftur víða
þér ég bíð með böll í mót
búin til að ríða

sjálfa fjöll og skriðu föll
skrímslin öll sig hræra
kempan snjöll með ríðu böll
kmeur í höllu læra

leggðu böll í læra höll
svo leiki fjöll á þræði
lát svö öll þau ógnar spjöll
upp í snjöllu kvæði

teygði hún á mér tittlinginn
til þess að mér stæði
gat hann þó eigi gengið inn
grétum við þá bæði

ungum var mér ekki rótt
eldur brann í holdi
átta hopp á einni nótt
ágætlega þoldi

þrælslega hefur þjakað mig
þessi næturleikur
tittlings greyið á mér er
eins og fífu kveikur

úti er mitt æskuskeið
eigi blund á festi
ef ég fæ mér eina reið
á átta daga fresti

þó greddu fjandinn mæddi mig
marg oft var þar vandi
nú kemst ég ekki upp á þig
elli árans fjandi


Mjölnir

Hrotum hrýtur Ásagarður
heima sofa æsir fast
lúskast um og áfram læðist
lokrekkju laumast ekki seinn

fremur þjófnað þursinn Þrímur
nældi þar í hamarinn
rís úr rekkju um allt glymur
reiður Þór vill Mjölni sinn

,,hamarinn, hamarinn,
hver hefur tekið hamarinn,
hamarinn, hamarinn,
Mjölnirinn minn”
horfinn hamar honum stolið
hissa stendur þrumugoðinn
látum nú ráða bestum dáða
náið í Loka Laufeyjarson

þá barst boð frá jötnaheimi
gjalda skal gjald fyrir hamarinn
Þrímir vill ólmur hafa Freyju
giftamál er lausnargjald

,,hamarinn, hamarinn
hver hefur tekið hamarinn?”

Freyja vill ekki giftast Þrími
neitar að opna kamarinn
Þór vill ekki missa Mjölni
rífur í sitt rauða skegg

klæða Þór sem brúðar meyju
upp á stingur Loki þá
saman svo til jötunheima
freystum þess að Mjölni ná

,,hamarinn, hamarinn,
hver hefur tekið hamarinn?”

bera Þór þarf brúðar búrka
benti þar Loki á og hló
fyndið finnst ei loka flissið
fýkur elding úr auga skær

þeisa þeir nú til jötunheima
þursaveilu sitja þar
hér er frjósemisins Freyja
fegurð meiri er ekki að fá

,,hamarinn, hamarinn,
hver hefur tekið hamarinn?”

þursinn Þrímur er á yði
augun þau standa stilkum á
hvenær fæ ég Freyju kossa
frakkur bíða ei lengur má

mjúkum ástaraugum þursinn
matur, mjöður, magans mál
vantar bara sína brúður
látum fram bera brúðarskál

,,hamarinn, hamarinn,
hver hefur tekið hamarinn?”

þegar við fáu í hendur hamar
Loki strax hann segir þá
lætur þursinn sækja Mjölni
vill hann sína Freyju fá

trilla nú tröllin inn með Mjölni
í myrkri ása Þór það sér
Þrímur þurs með stút á munni
kossinn þarna ætlar sér

,,Hamarinn, hamarinn,
hver hefur tekið hamarinn?”

þrífur Ásaþór þá Mjölni
þrumu elding tröllið fraus
hamrinum hendir hann að Þrími
molar þar sundur þursins haus

,,hamarinn, hamarinn,
nú hef í hendi hamarinn!
hamarinn, hamarinn
Mjölnirinn minn.”



Móður Ást (Heimkoma)

Fýkur yfir hæðir og frostkaldan mel,
í fjallinu dunar, en komið er él
snjóskýin þjóta svo ótt, svo ótt.
Auganu hverfur um heldimma nótt
vegur á klakanum kalda.

Hver er hin grátna, sem gengur um hjarn,
götunnar leitar, og sofandi barn
í faðmi sér hylur, og frostinu ver,
fögur í tárum, en mátturinn þver.


Vegur á klakanum kalda
hún orkar ei áfram að halda
saklausa barninu að bjarga
má ekki fjörinu farga.

Sonur minn blíðasti sofðu nú rótt
sofa vil ég líka þá skelfingarnótt
sofðu ég hjúrka og hlífi þér vel
hjúkrar þér móðir frá grimmustu él

Í dimmunni þunglega þýtur
ölnuð í frostinu sefur
dauð er hún fundin á kolbláum ís
snjóhvita fannblæju lagði yfir lík
beljandi vindur um hauður og lá
þegar dagur úr dökkvanum rís
sól móti sveininum lítur.

Því að hann lifir og brosir og býr
bjargandi móður í skjólinu hlýr.

(Úrdráttur úr ljóðinu ‘Móðuást’ eftir Jónas Hallgrímsson)



Máninn (Víkinga Seiður)

Máninn hátt á himnum skín
hrímfagur og grár
ár og öld er liðin
og liðið er nú ár.

(Úrdráttur úr ljóðinu ‘Álfadans’ eftir Jón Ólafsson)


Næsti bar (Bylur)

Þegar drukkið er hratt
það er víst aldrei smart
það hefur manni margt
farið víst á því flatt

blessað brennivínið

aumum og ísdölum, verður þá köllunum
verkjar í vöðvunum, trekkir í taugunum

blessað brennivínið

hamrar í hausunum, ískrar í mögunum
hjartað þá hamast hratt, ekki er lífið bjart

blessað brennivínið

illt fyrir innyflin, sárt fyrir sálina
upplifa dauða sinn, gleðin hún var um sinn

blessað brennivínið

aldrei að drekka það, hreint ekki smakka það
því þar á næsta bar, þar sem ég eitt sinn var
var var var var var brennivínið.

Óðinn (Óðinn)

Hétum Grímur, Gangleri,
Herjan, Hjálmberi ok Þekkur,
Þriðji, Þuður ok Uður,
Helblindi, Hár ok Saður,
Svipall, Sanngetall, Herteitur,
Hnikar, Bileygur, Báleygur,

ÓÐINN

Bölverkur, Fjölnir ok Grímnir,
Glapsviður ok Fjölsviður,
Síðskeggur, Síðhöttur, Sigföður,
Hnikuður, Alföður, Atríður,
Farmatýr, Óski ok Ómi,
Jafnhár, Biflindi ok Göndlir,

ÓÐINN

Hárbarður, Sviður ok Sviðrir,
Jálkur, Kjalar ok Viður,
Þrór, Yggur, Þundur ok Vakur,
Skilvingur ok Váfuður,
Hroftatýr Veratýr, Gautur,
það eru óðin nöfnin

ÓÐINN


Ólafur Liljurós (Stiklur)

Ólafur reið með björgum fram
villir hann stillir hann
Hitti hann fyrir sér álfarann
þar rauður loginn brann
blíðan lagði byrinn undan björgunum fram
þar kom út ein álfamær,
gulli snúið var hennar hár
velkominn Ólafur Liljurós,
gakk í björg og bú með oss
ekki muntu héðan fara
að þú gefir oss kosinn spara
Ólafur laut um söðulboga
kyssti hann frú með hálfum huga
hún lagði undir hans herðarblað
í hjarta rótum staðar nam
Ólafur leit sitt hjartablóð
líða niður við hestsins hóf
Ólafur keyrði hestinn spora
heim til sinnar móður dyra
hvaðan komstu sonur minn
hvernig ertu svo fölur á kinn
leiddi hún hann í loftið inn
dauðann kyssti hún soninn sinn

(Úrdráttur úr þjóðkvæðinu Ólafur Liljurós)


Óskasteinar (Loka Leikur)

Lengi leitað hef, leitað minna mánasteina
heimunum níu hef í öllum huldu hella skútum
lágt og lög ég hef leitað minna óskasteina
mána myrkva á, má þá sjá í myrkri lýsa

Öllum heimum spurt, leitað bæði daga og nætur
þursa hef ég spurgt, tröllaskessu allar dætur
ása hef ég spurgt, valkyrjur og víga menni
dverga, dísir spurgt, en hvergi eru örlaganna steinar

Ef ég hefði óska steina, öllum heimi myndi breita

Horfnir eru mér, allir mínir mánasteinar
ég fæ aldrei séð, aftur mína óska steina

Mánasteinar, barndómssteinar, heillasteinar, óskasteinar, sælusteinar.


Páskadísaeiginmenn

Baggi og Lútur,
Rauður og Redda,
Steingrímur, Sledda,
Lækjaræsir, Bláminn sjálfur,
Litapungur, Örvadrumbur.

Kattarvali kom þú hér
kæri bróðir hjálpa nú mér

(Úrdráttur úr Þjóðvísu frá strandasýslu)

Pytlan (Stiklur)

Á flösku fullur flöktandi
þá syrgir sálin stynjandi
á glasið glóir glottandi
sælt er að vera súpandi
fálmar eftir flöskunni
syngur svo í sálinni
dropinn dettur dansandi
pínulítið í pytlunni
pínulítið í pytlunni


Raftar (Bylur)

Það ríða raftar á holtunum
á blóðugum hestunum
skálmöld, váöld, vargöld

það klingir í reitygjum
skellur í hófunum
skálmöld, váöld, vargöld

með öskrum og óhljóðum
morðingjum bandóðum
verjumst bræður berjumst

rýtinga ribbaldar
blóðþyrstir andskotar
verjumst bræður berjumst

siðspilltum hundingjum
þjófum og morðingjum
verjumst bræður berjumst

látum hvína í sverðunum
og skella í skjöldunum
skálmöld, váöld, vargöld.


Ragnarök (Loka Leikur)

Fljúga um loftin
Huginn og Muninn
skíma og skanna
allt sem þeir sjá

vitneskju útgarðs
miðgarðs og manna
um sólarlag færa
Óðni heim

vegur vitinu
við Óðins auga
hvað er að gerast hvað hefur gerst

ferlegar fréttir
fuglarnir færa
heimi réttir
harm og hel

sagt og satt
spádómar rætast
örlögin spinna
spilar nú spil

nálgast nú lokin
alvaldur sér
véfréttir færa fuglarnir hér

í valhöll einherjar
exirnir eggja
sverjandi við spjót sverð og skjöld

kallið er komið
klárir sveinar
örlögum ógnandi
ögur stund

safnast saman
sunnan við mána
eldjötnar, þursar
þvílíkt er lið

naglfara námunda nú úr Naustum
sjókláran segl undan
settan á flot

Óðinn óttast
ógn og vá
fjötrar Fernis
falla frá
úlfur gleypir
jörðu át
veröld okkar
endar þá

reginn á rökstóla
reginn á rökstóla

RAGNARÖK


Ró (Óðinn)

Róum öllum árum
út á fiskimið
fiskum fisk í færabát á flóanum
sá sem fyrstur fiskar frískan fisk
fær flöku slurk
á tóftunum

ef að aflast vel
í þessum fiski túr
og ég fái heilan allann hllutinn minn
hertann, leginn, síginn, gellur, kinnar
lifur, hrogn og söltuð flök

ef að aflinn brestur
út á miðunum
ekki bröndu að draga upp úr djúpunum
þá í naustum verður karlinn svektur
sár og súr og úrillur

Þór hann setti á krók af nauti
stórann haus
á dýpstu miðum renna færum
hann kaus
dorga vildi í eim mundi veiðin
væri bæði stór og laus

fram hann hennti úr bala
beittum færunum
rogginn reistur réri rétt á
röngunum
mestum Ásamóði, mætti úr mari sjálfum
miðgarðsorminum

ekki sleppa vildi hann af
snærunum
því sem festast vildi fast á
færunum
í þeim færa leiki miðgarðsmönnnum
best fer á í naustunum


Sálmur nr. 1 (Páskadísaeiginmenn)

Tunga mín vertu trú og trygg
þeim tæra sannleika
ef að allaf satt og rétt
í öllum veruleika

Gleði og glaumi njótum alls
glaðir gumar lifa
forðast fólsku, flag og fals
fíflin þar öll yða

Best sem brynja skær er skín
blaðið beitt sem sverðið
sver þá sigrar sannleikur
er satt og rétt er kveðið

Gleði og glaumi njóturm alls
glaðir gumar lifa
forðast fólsku flag og fals
fíflin þar öll yða


Sléttubönd (Bylur)

Sóma stundar, aldrei ann
illu pretta táli,
dóma grundar, hvergi hann
hallar réttu máli.

Máli réttu hallar hann
hvergi grundar dóma
táli pretta illu ann
aldrei stundar sóma



Sólstöður (Stiklur)

Er aftur sólin sækir veg
og birtan bætir daginn
þá ljósið lífgar unaðsleg
bætir allann haginn.
Lífsins ljós við lofum þig
líf og kraftinn allann
ljóssins dagar leika mig
ljósann himinn allann.

Loksins beygir myrkrið sig
eftir vetur þungann
mikla ljós ég elska þig
lýstu upp heiminn allann.


Stiklur (Stiklur)

Króna hér og króna þar
aurinn stanslaust talinn
passa uppá krónurnar
enda vel upp alinn.
Aldrei neitt með nokkrum stæl
ekki leika greifa.
Nánasanna nísku væl
reikningunum veifa.
Nánasanna nískustand
stendur mér á sama,
fæ ég fyrir hjartað hland
og allt verður til ama.
Er ég kom á Íslandsströnd
haldinn dönskum ekka,
ekki linast listabönd
látum okkur drekka.


Sælugaukur (Bylur)

Úr suðri er sælugaukur
úr austri auðsgaukur
úr verstri er vesæls manns gaukur
úr norðri er námsgaukur
en uppi er unaðsgaukur
og niðri nágaukur.

Sunnudagur til sælu
mánudagur til mæðu
þriðjudagur til þrifa
miðvikudagur til moldar
fimmtudagur til frama
föstudagur til fjálr
laugardagur til lukku.

Ungan fráan fjörugan
folann smáan hnellinn
legg ég á þó hamist hann
hlær þá gráa ellin.



Þursatal (Bylur)

Kraft skal hafa af tröllum
koma skal af fjöllum
Dofri, Dumbur, Dólkur,
Þrymur, Þuli, Þursi
Bolþorn, Brímir, Bergelmir,
Grímur, Glámur, Gapi,
Þurr, Þjasi, Þrúðgeimir,
Bjálki, Bergur, Búðarbárður,
Kolbjörn, Klói, Köttur,
Hyrmir, Hymir, Hugnir,
Sumar, Surtur, Snær,
Ægir, Ýmir, Útgarðsloki,
Magni, Gýmir, Ragnarökur,
ekki næ ég öllum
krafti jötna tröllum.



Tvær vísur (Stiklur)

Við eldinn sátu töfratröll
tekin vora að sjóða
menguð átu merarfjöll
með ólátum höfðu sköll.
Þurr skyldi þorri
þeysöm góa
votur einmánuður
á mun vel vora.


Tröllatramp (Loka Leikur)

Trampa tröllin á
Tungufell
Tekin til við að sjóða
Tuttugu trippi og
sauði með
þar skildu þau blóta.

Fjórðungum öllum
þustu að
þursum og skessum
boðið var
kellur hrærðu í pottunum
glamraði í sleifunum
ýlfrar í þursa mögunum
beðið var eftir bitanum
römm er þokan
við Tungufell
römm er þokan
við Tungufell

Stálu þursar
úr pottunum
rann þá öðrum
í brúnunum
með sleifunum
börðu á hausunum
brá þá öllum
skessunum
trölla slagur á fellinu
féllu flykkin í flæginu
á Tungufelli
upp úr sauð
tröllin eru
nú þar dauð

römm er þokan
við Tungufell
einmana eru
skessurnar nú





Útgarðsloki

Taktfast tröllabumbur
trillast Útgarði í
óma Þórsins þrumur
þar hann er á ný

þeysist fram á þrumu
með í þeirri sveit
þau Loki Þjálfi og Rökkva
Þór í jötna leit

háloftunum háu
tarfar draga vagn
með Mjölni þau þar sáu
Þórsins mikla magn

flottan finna skálann
fínt að hvíla þá
verða vör við skjálftann
Þór fer út að gá

hrotum hrítur Skýrnir
hristist jörð og skafl
útúr skála kíkir
úrlausna nú þarf

úti rosa risi
röskur í hann nær
skálinn sem var hanski
grettir sig og hlær
saman skulum fylgjast
í stórborg jötnanna
þú þarft ekki að óttast
Ökuþór Ásanna


þursinn þiggur þraut
Ökuþór Ásanna
Loki lepur graut
en Logi dallana

Hugi hrósar happi
tvær hefur ferðirnar
þýtur Þjálfi kappi
þrjár umferðirnar

þjórar Þór úr horni
botnar ekki þar
þyrkur allt að morgni
í mari endinn var

lifta lét nú ketti
lítill virðist hann
en allt kom fyrir ekki
Miðgarðsorminn þann

kom þá gömul kerling
við kappan glíma má
féll hann við á vettling
við ragnarrökum lá

ferðin var í flippi
ferleg eru tröll
tíminn er á trippi
tælir sagan öll.


Valkyrjur (Óðinn)

Um lág og lög þær hestum hleypa
Randgrið og Rápgrið og Reiginleif

örlögum ráða þær Þrúður og Hildur
Hlökk og Herfjötur inniflavef

Gunnur og Rota sigrinum ráða
feigðina Urður, Verðandi og Skuld

Skeggöld og Skögul kappana finna
Hrist og Mist þá rísa þeir upp

saman til Valhallar veislu er skeiðað
Valkyrjur veita af veigum og vín

úr mjaðarhornunum drekka
Óðins valhallar einherja her

vaki vaskar Valkyrjur
velja skal úr völum
valhornum og láti hátt
einherjum í Valhöll.



Vargar (Heimkoma)

Vargar ráðast þá á
rupla og ræna öllu sem þeir sjá
verjast saman í sátt
berjast allir dvergarnir brátt
öskra ósjálfrátt
dvergarnir sýna baráttu mátt

dvergarnir skjaldborgum í
vígreifir standa styttist nú bið
veita vargar nú hríð
dvergarnir arga komin er tíð
blóðrússi dverga lið
vörgum veita engum nú grið

argandi öskrandi
renna þar saman vígaleg lið
skjöldum skellandi
stinga og höggv þetta er stríð
böðlar drepandi
dvergar gefa vörgum ei grið

blóðið spýtist úr sárum aumum
rennur um valinn í stríðum straumum
í sigurrússi dvergar arga
sjá nú allir hrafnar garga.



Vinir vorsins (Gjörningur)

Þá vakna vinir vorsins
og veðrin verða væn
tifar tímans klukka
og trén þau verða græn

blómálfar á sér bæra
og byrja vorsins verk
sætri saft þeir dæla
svo blómin verða sterk

Þeir í hreti þrauka
þá lifnar jörðin senn
lokka þar upp lauka
gleður ljúfa menn

bæjum byggð og bólin
birtan björt og blíð.
aftur skín nú sólin
svo grænka fer í hlíð
blómálfanna umfang
um lendur nú má sjá
væna vorsins framgang
vetur víkja má

blómálfarnir orka
og smyrja vorsins vél
gróður fer að grænka
gerist hratt og vel


Vinterblot (Stiklur)

Úti er myrkrið margfaldað
mitt er nú á vetri
vænt ég yrki sætsullað
vömbin kýld af keti
með gott í glasi æsist nú
allt er nú með asa
hvað er þetta nú mín frú
ekki fara að þrasa
þegar ég vil skemmta mér
með glaumi gleði og glansi
vil ég bara vera með þér
í villtum trylltum dansi
þegar mér um varir vín
vasklega ég veiti
elska ég þig ástin mín
þó viti ei hvað ég heiti.

Þá var gaman þá var gott
þá var öl í geði
nú á ekki þurrt né vott
horfin stundargleði
Ásaþór á þrumureið
lukku fellur í pottinn
syngjum saman soldinn seið
af stalli fellur drottinn.


Vorið vaknar (Víkinga Seyður)

Vorið vaknar vorið vill
vorið veitir viljann
vonin vakna vill
vonina veitir vorið

þá verður gengið verki að
vasklega það unnið
vökulum augum vandlega
vinnuna við sungið

svitinn rennur ljúflega
svona er að púla
seint um síðir sætlega
svefninn sæta ljúfa

vaskir á völlum varlega
veitist okkur vitið
Valhallar veislu veglega
Völsunganna setið

vakna snemma á morgnana
verkin verð að vinna
svona er veröld mannana
stússi sínu sinna

nánasanna níksu stand
stendur mér á sama
fæ ég fyrir hjartað hland
og allt verður til ama.


Vögguvísa (Páskadísaeiginmenn)

Þei þei og ró ró
og sofðu nú rótt
hérna við eldinn
er ylur í nótt

faðir þinn vakir
býr þér hér ból
í myrkrinu heyrir
margskonar hljóð

ýlfra þar úlfar
tófan hún gól
meira nú myrkvar
sest niður sól

byltist í bóli
magnast nú nótt
myrkur í skógi
sofa þú átt

faðirinn verndar
hvílast nú má
eigi þú rumskar
hann vakir þér hjá

þei þei og ró ró
og sofðu nú rótt
hérna við eldinn
er ylur í nótt



Böðulsvísur (Bylur)

Hnífurinn skal bíta
svo blóði skaltu spýta
hausinn af þér fjúka
og limir burtu rjúka

á þig skal ég stökkva
hausinn af þér höggva
beinin brjóta og bramla
skrokkinn sundur skera


berja gelda bíta flá
blinda klóra flengja
brenna, reka útlegð á
aflima og hengja

kála klára kvista og kæfa
ráða bana, bassa blæða
eyða deyða farga fella
sníða stúta skjóta slátra

glata granda heltaka
vega veiða vinna á
taka af og tortíma
deyja drepast dauðaglímu

berja gelda bíta flá
blinda klóra flengja
brenna, reka útlegð á
aflima og hengja


Æstur Argur (Gjörningur)

Æstur og argur
gammur grimmur
rasandi reiður
hraustur rammur

aumur er griður
hver sem um biður
siður er yður
að kljúfa í herðar niður

vísurnar hræða
orð mín og ræða
blóð skal blæða
látum það flæða

högg axar hrífur
í sárinu svíður
vel bítur hnífur
blóð spjóti drýpur

innyfla leðja
sverðið mun gleðja
kappann mæða
í slaginn æða

stingdu og dreptu
að getu bestu
við þá berstu
víkinga verstu

höggvum hausa
orrustu sinna
illmenni drepa
við munum vinna

lemjum og berjum
náum hefndum
á vorum fjöndum
til heljar sendum

hólmurinn auður
völlurinn rauður
herinn er dauður
okkar er auður
sjóðurinn digur
silfur í kistu
á hefur mætur
sigur er sætur.

credits

released September 14, 2001

All rights of the producer and the owner of this recorded work reserved. Unauthorised copying, public performance, broadcasting, hiring & rental of this recording prohibited. Copyright Krauka 2001

license

all rights reserved

tags

about

Krauka Aarhus, Denmark

This is some hard-edged, macho, Viking stuff. Using implements of destruction and pillage ranging from hide drums to shawms to jew’s harps to chainsaws and axes, this Nordic quintet hacks into the Scandinavian permafrost.

contact / help

Contact Krauka

Streaming and
Download help

Redeem code

Report this album or account

If you like Krauka, you may also like: